Ađalsíđa Félagiđ Fréttir Fundir Námskeiđ Greinar Myndir Tenglar
Búddasiđur
Gyđingdómur
Hindúasiđur
Islam
Kristindómur
Önnur trúarbrögđ
Siđfrćđi
Samţćtt verkefni

Fréttir

Ráðstefnan sem halda átti 14. október er frestað, en félagar eru hvattir til að skrá sig á ráðstefnu í Norræna húsinu, föstudaginn 7. október 2011 kl. 17 sem fjallar um umburðarlyndi í trúmálum. 

Skráning er á netfanginu ahmadiyyaiceland@hotmail.co.uk eða í síma 551 9423

Sett inn 4. október 2011 

Ráðstefna fyrir kennara í kristnum fræðum, siðfræði og trúarbragðafræði verður haldin föstudaginn 14. október kl. 12 í safnaðarheimili Óháða safnaðarins.

Takið tímann frá nú þegar. Nánari upplýsingar koma fljótlega. 

Sett inn 2. október 2011 

 

Því miður er hugbúnaðurinn sem heldur utan um heimasíðu félagsins úreldur og miklum erfiðleikum háð að uppfæra hana.

Vegna þessa er nú unnið að því að færa gögn yfir á nýtt form sem hjálpar okkur að halda betur utan um síðuna okkar. Biðjum við heimsóknargesti að sýna okkur þolinmæði á meðan á verkinu stendur.

Stjórn FÉKKST

07.02.2011

Aðalfundur félagsins verður haldinn

í  Álftamýrarskóla

 fimmtudaginn 10. febrúar kl. 16:00

Sérstakur gestur fundarins verður dr. Arnfríður Guðmundsdóttir.  Hún mun flytja erindi sem hún kallar:

Kristur í kvikmyndum

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku svo hægt sé að áætla veitingar á fekkst@kennslaogtru.is

eða í síma 893-0545 (Birgitta).

 

Sjá nýtt fréttabréf félagsins 2011 hér:

Meira
27.01.2011
Aðalfundur félagsins verður haldinn
fimmtudaginn 10. febrúar 2011 kl. 16:00 í Álftamýrarskóla.

Stjórnin


Meira
03.01.2011

Kóraninn

Kóraninn, helgirit Íslam, er einn mikilvægasti texti mannkynssögunnar. Múslimar trúa að Kóraninn innihaldi bókstafleg orð Guðs og þess vegna myndar þessi bók grundvöllinn að helstu trúarhugmyndum Íslam. Á sama tíma er deilt um að hversu miklu leyti eigi að heimfæra og innleiða trúarhugmyndir þess í nútímasamfélög.

Á þessu námskeiði verða saga og helstu guðfræðileg, lagaleg og pólitísk atriði Kóransins skoðuð. Fjallað verður um uppbyggingu og sögu Kóransins og eftirfarandi stef tekin fyrir: sjálfsmynd Kóransins, sköpun veraldar og dómsdagur, hugmyndir um réttlæti, viðhorf til annarra trúarbragða (sér í lagi Kristni og gyðingdóm), staða kvenna, samfélagsskipan og hvort / hvenær / hvernig eigi að heyja stríð

 Kennsla / umsjón:

Magnús Þorkell Bernharðsson, sérfræðingur í málefnum Íslam og Mið-Austurlanda, dósent við Williams College í Bandaríkjunum og lektor við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ.

Hvenær:

Mán. og mið. 10., 12., 17. og 19. jan. kl. 20:15 - 22:15 (4x)

Verð: 16.900 kr.

Hvar: Endurmenntun, Dunhaga 7.

Skráning hér:


Meira
 
Látum skynsemina ráđa um fortíđina, trúna ţegar horft er fram á viđ og kćrleikann í kringum okkur.

Skráning í félagiđ

Hafđu samband

© 2007 FÉKKST     |     Vefhonnun Design EuropA