Ađalsíđa Félagiđ Fréttir Fundir Námskeiđ Greinar Myndir Tenglar
Búddasiđur
Gyđingdómur
Hindúasiđur
Islam
Kristindómur
Önnur trúarbrögđ
Siđfrćđi
Samţćtt verkefni
07.02.2011

Aðalfundur félagsins verður haldinn

í  Álftamýrarskóla

 fimmtudaginn 10. febrúar kl. 16:00

Sérstakur gestur fundarins verður dr. Arnfríður Guðmundsdóttir.  Hún mun flytja erindi sem hún kallar:

Kristur í kvikmyndum

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku svo hægt sé að áætla veitingar á fekkst@kennslaogtru.is

eða í síma 893-0545 (Birgitta).

 

Sjá nýtt fréttabréf félagsins 2011 hér:

Meira
27.01.2011
Aðalfundur félagsins verður haldinn
fimmtudaginn 10. febrúar 2011 kl. 16:00 í Álftamýrarskóla.

Stjórnin


Meira
03.01.2011

Kóraninn

Kóraninn, helgirit Íslam, er einn mikilvægasti texti mannkynssögunnar. Múslimar trúa að Kóraninn innihaldi bókstafleg orð Guðs og þess vegna myndar þessi bók grundvöllinn að helstu trúarhugmyndum Íslam. Á sama tíma er deilt um að hversu miklu leyti eigi að heimfæra og innleiða trúarhugmyndir þess í nútímasamfélög.

Á þessu námskeiði verða saga og helstu guðfræðileg, lagaleg og pólitísk atriði Kóransins skoðuð. Fjallað verður um uppbyggingu og sögu Kóransins og eftirfarandi stef tekin fyrir: sjálfsmynd Kóransins, sköpun veraldar og dómsdagur, hugmyndir um réttlæti, viðhorf til annarra trúarbragða (sér í lagi Kristni og gyðingdóm), staða kvenna, samfélagsskipan og hvort / hvenær / hvernig eigi að heyja stríð

 Kennsla / umsjón:

Magnús Þorkell Bernharðsson, sérfræðingur í málefnum Íslam og Mið-Austurlanda, dósent við Williams College í Bandaríkjunum og lektor við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ.

Hvenær:

Mán. og mið. 10., 12., 17. og 19. jan. kl. 20:15 - 22:15 (4x)

Verð: 16.900 kr.

Hvar: Endurmenntun, Dunhaga 7.

Skráning hér:


Meira
22.12.2010
Ágætu félagsmenn og velunnarar.
Sendum okkar bestu óskir um gleðileg jól.
Þökkum farsælt og gefandi samstarf á árinu sem er að líða.
Stjórn FÉKKST 2010
Birgitta, Björg, Guðmunda, Kristín og Valgarður.

 

img_0672_640

Meira
16.12.2010

Minnum á jólavef Námsgagnastofnunar.

Sjá nánar hér: http://vefir.nams.is/jolavefur_2010/index.html


Meira
09.12.2010
 
img_0672_640
Myndir unnar af nemendum í 1. bekk um sögu jólanna.

Meira
11.11.2010
Samfélag Ahmadiyya múslima á Íslandi stendur fyrir fræðslufundi
 um líf og starf stofnenda trúarbragða í

 Norræna húsinu

 mánudaginn 15. nóvember 2010 - kl. 17:00.

Dagskrá:

 17:00
Kynning / Introduction
Mr. Uwe AbdullahWagishauser National Amir of Ahmadiyya Muslim Jamaat, Germany/ forseti samfélags Ahmadiyya múslima í Þýskalandi.
17.15
Líf og starf Shakyamuni, stofnanda búddismans
The life and work of Shakyamuni, the founder of Buddhism
Eygló Jónsdóttir, Leader of Soka Gakkai International in Iceland / leiðtogi Soka Gakkai búddista á Íslandi
17:35
Líf og starf Jesú Krists, stofnanda kristindóms
The life and work of Jesus Christ, founder of Christianity.
Dr. Pétur Pétursson Professor in practical theology at the Faculty of Theology and Religion at the University of Iceland / prófessor í
kennimannlegri guðfræði við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands
17.55
Líf og starf spámannsins Hadhrat Muhammad(s.a.w.),stofnanda íslam.
The life and work of prophet Hadhrat Muhammad(s.a.w.), the founder of Islam.
Dr. IftikharAyaz, OBE,
Head of the Tuvalu Islands Mission in the U.K.and Senator of the World Nations Congress.
Yfirmaður Bretlandsdeildar Tuvalu eyja trúboðsins og þingmaður á Þjóðaheimsþinginu.
18:15
Tími fyrir viðbrögð og spurningar
Responses and questions time
18:45
Tími til samtals / Social time
Boðið verður upp á einfaldar veitingar / Light refreshment is served.
Kynnir / Moderator: Bjarni Randver Sigurvinsson

Allir hjartanlega velkomnir – Ókeypis þátttaka

Skráning á / R.S.V.P: Ahmadiyyaiceland@hotmail.co.uk tel. 551 9423
 

 


Meira
29.10.2010

Stjórn félagsins boðar til fræðslufundar um

Ahmadiyya múslima

sem haldinn verður í Ártúnsskóla, Árkvörn 6, 110 - Reykjavík

Fimmtudaginn 4. nóv. kl. 16:00

Bornar verða fram gómsætar veitingar að hætti Pakistana og því mikilvægt að skrá þátttöku fyrir þriðjudaginn 2. nóvember. Fundurinn er félagsmönnum að kostnaðarlausu.

Skráning fer fram á:
fekkst@kennslaogtru.is
eða í síma 893-0545 (Birgitta) 

Við hvetjum félagsmenn til að mæta á fundinn og vonandi skapast svigrúm til skoðanaskipta varðandi drög að tillögum mannréttindaráðs Reykjavíkur.  

Sjá nýtt fréttabréf félagsins hér:   http://www.kennslaogtru.is/pdf/news46.pdf

 


Meira
24.10.2010

Vegna tillagna sem Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar hefur nú til umfjöllunar um samstarf skóla og trúar- og lífsskoðunarfélaga vill stjórn Félags kennara í kristnum fræðum, siðfræði og trúarbragðafræði (FÉKKST) koma eftirfarandi á framfæri.

FÉKKST er fagfélag innan Kennarasambands Íslands og eitt af meginmarkmiðum félagsins er að gæta hlutleysis og hlúa að greininni á faglegan hátt. Við viljum njóta trausts og vera hafin yfir ásakanir um trúboð í skólum. Fagmenntun kennara á að tryggja nemendum óhlutdræga fræðslu.

Stjórn félagsins telur að ákvæði um að banna heimsóknir nemenda í bænahús trúfélaga feli í sér skerðingu á möguleikum kennara í trúarbragðafræði til að beita fjölbreyttum kennsluháttum. Slíkar vettvangsferðir eru vænlegur kostur til að dýpka skilning nemenda á ákveðnum viðfangsefnum og þjóna þeim tilgangi að kynna fyrir þeim hlutverk og innviði þessara bygginga, trúartákn sem þar er að finna og skipulag. Umrædd fræðsla hefur ekkert með trú nemandans að gera. Þvert á móti er verið að efla víðsýni nemenda og leitast við að fyrirbyggja fordóma.

Víða í aðalnámskrá grunnskóla er talað um vettvangsferðir sem mikilvægan hluta af námi nemenda. Hér stangast tillögur Mannréttindaráðs Reykjavíkur á við áherslur í aðalnámskrá.

Með ákvæðum um bann við trúarlegri listsköpun og notkun sálma er einnig verið að hamla því að beitt sé skapandi og fjölbreyttum vinnubrögðum í trúarbragðakennslu. Biblían og önnur trúarrit eru uppfull af táknrænu myndmáli sem birtist í listasögunni og trúarleg efni hafa verið listamönnum innblástur í gegnum aldirnar. Í aðalnámskrá grunnskóla í kristnum fræðum, siðfræði og trúarbragðafræði er bæði gert ráð fyrir að nemendur kynnist listrænni tjáningu trúar og fái tækifæri til listrænnar sköpunar. Eftirsóknarvert þykir að samþætta kennslu í trúarbragðafræði við listgreinar og háleit markmið aðalnámskrár grunnskóla í listgreinum frá árinu 2007 bera þess glöggt vitni. Í henni má finn mýmörg dæmi um mikilvægi listsköpunar í námi barna.

Svo virðist að kennurum sé ekki treystandi lengur til að beita kennsluháttum sem fela í sér listsköpun er tengjast trúarlegum viðfangsefnum án þess að í því felist trúarleg tilbeiðsla. Í aðalnámskrá grunnskóla er mikil áhersla lögð á skapandi vinnu nemenda og þykir okkur skjóta skökku við ef ekki má beita slíkum vinnubrögðum í trúarbragðakennslu.

Í markmiðskafla nýju grunnskólalaganna er tóku gildi 1. júlí árið 2008 segir í 2. grein:

 Starfshættir grunnskóla skulu mótast af umburðarlyndi og kærleika, kristinni arfleifð íslenskrar menningar, jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi, ábyrgð, umhyggju, sáttfýsi og virðingu fyrir manngildi.

Það er ekki hægt að líta fram hjá þeirri staðreynd að Íslendingar eru þjóð með kristna menningararfleifð sem skólarnir taka mið af. Skólinn hefur m.a. menningarlegum skyldum að gegna gagnvart nemendum sínum. Í grunnskólum borgarinnar er skólamenning sem sérhver skóli hefur mótað og þróað í starfi sínu. Ýmsir viðburðir og hefðir hafa fest sig í sessi og eru í dag órjúfanlegur þáttur í starfi skólanna. Má þar nefna kirkjuheimsóknir og helgileiki nemenda fyrir jól. Þannig heimsóknir þarf þó að skipuleggja út frá forsendum skólans sem fræðslustofnun með nemendur með ólíkan bakgrunn.

 Trúarbrögð gegna veigamiklu hlutverki í menningu og þjóðlífi og það hlýtur að teljast afneitun á þeirri staðreynd að ætla að skera á öll tengsl skóla og trúarstofnana í landinu. Félagið telur sjálfsagt mál að setja ramma um samstarf skóla og trúar- og lífskoðunarfélaga en telur tillögur Mannréttindaráðs með boðum og bönnum ekki vænlega leið.

Stjórn FÉKKST þykir miður að tillögur Mannréttindaráðs skuli hamla skapandi skólastarfi á sviði trúarbragðafræðslu og takmarka sjálfstæði kennara í sínu faglega starfi. Markmið skólastarfs og kennslu er að gera nemendur meðvitaða um fjölbreytileika mannlífsins, stuðla að umburðarlyndi gagnvart ólíkum skoðunum fólks og fyrirbyggja fordóma. Þykja okkur tillögurnar sem eru til umfjöllunar hjá Mannréttindaráði bæði vanhugsaðar og gallaðar og hvetjum til að þær verði dregnar til baka í núverandi mynd.

Hér hefur aðeins verið drepið á örfá atriði sem stjórn FÉKKST vill vekja athygli á að svo stöddu. Við teljum að tillögur Mannréttindaráðs vegi að fagmennsku kennara og séu ekki til þess fallnar að skapa þá nauðsynlegu sátt sem ríkja þarf um námsgreinina og skólastarfið almennt.

Birgitta Thorsteinson, formaður
Meira
21.10.2010

Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar hefur nú til umfjöllunar drög að tillögum um samstarf skóla og trúar- og lífsskoðunarfélaga. Af því tilefni hefur stjórn FÉKKST sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu:

"Stjórn félagsins vill koma á framfæri óánægju sinni með drög að tillögum Mannréttindaráðs Reykjavíkur um ýmis atriði er lúta að kennslu greinarinnar og samstarfi skóla og trúfélaga. Í tillögum ráðsins þykir okkur vegið að faglegum heiðri kennarastéttarinnar.

Við viljum benda borgaryfirvöldum á að kennarar virða sjálfsagðan uppeldisrétt foreldra. Almenna kennslu í trúarbragðafræðum á ekkert foreldri/forráðamaður að þurfa að óttast því kennarar eru meðvitaðir um hlutverk sitt.

Kennurum er einnig treystandi hvað varðar val á samstarfsaðilum í vettvangsferðum og útfærslu kennsluhugmynda. Það er skoðun stjórnar félagsins að virða beri sjálfstæði skólanna og styrkja þá enn frekar í samstarfi og samskiptum við nærsamfélag sitt".

Stjórn FÉKKST hefur ýmislegt fleira að athuga við þessar tillögur og mega félagsmenn eiga von á frekari upplýsingum frá stjórn félagsins á allra næstu dögum.


Meira
1 2 3 4 5 6 7 8 Next
 
Látum skynsemina ráđa um fortíđina, trúna ţegar horft er fram á viđ og kćrleikann í kringum okkur.

Skráning í félagiđ

Hafđu samband

© 2007 FÉKKST     |     Vefhonnun Design EuropA